Gerðu fræðsluna áhugaverða
Virkjaðu notendur
Hnitmiðuð námskeið úr fjölbreyttum einingum
Prufaðu eitthvað nýtt
Brjóttu hlutina upp
Öflugra starfsfólk
Myndband
Ekki bara haka í boxið - Sérsniðin námskeið sem skila árangri!
Fræðsla og þjálfun eru ekki síður mikilvægar leiðir fyrir fyrirtæki til að ná markmiðum sínum. Með sérsniðnum námskeiðum getur þú tryggt að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að ná markmiðum fyrirtækisins þíns. Gefðu starfsfólkinu þínu tækifæri á að læra til að afreka eitthvað ekki bara til að standast kröfur og reglugerðir.
Virkni
Komdu fræðslunni á hærra plan
Endurnýttu námskeiðseiningar
Námskeiðin okkar samanstanda af mörgum minni einingum sem hægt er að endurnýta í öðrum námskeiðum seinna meir eða geta einfaldlega orðið að nýjum námskeiðum með því að púsla þeim saman upp á nýtt.
Notendaupplifun
Nútíma notendur gera kröfu um að stafrænt efni sem þau nota uppfylli vissar kröfur um gæði, virkni og aðgengi. Glærukynningar virka til dæmis erfiðlega á sjallsímum en við getum aðstoðað við að koma glærukynningum á farsímavænt form.
Teymi af fagfólki
Teymið okkar samanstendur af efnishöfundum, grafískum hönnuðum og vefhönnuðum sem búa til námskeið alla daga. Það er mikill sparnaður sem felst í því að kaupa þessa þjónustu af AVIA frekar en að ráða slíkt teymi til að starfa innanhúss.
Umræður í námskeiðum
Námskeið sem eiga sér stað í raunheimum bjóða uppá möguleikann á því að spurja spurninga og fá svör sem allir geta nýtt sér. Fræðslukerfið okkar býður upp á möguleikann á því að spurja spurninga sem kennari námskeiðsins getur svarað og aðrir notendur svo séð.